Þjónustuskilmálar

Skilmálar

Velkomin í vefverslun Hvísl. Með því að kaupa vörur eða nota síðuna samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

1. Greiðslur
Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt.
Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt Shopify Payments eða kreditkort.

2. Afhending og sendingar
Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er.
Afhendingartími er að jafnaði 1–5 virkir dagar innanlands.
Hvísl ber ekki ábyrgð á töfum eða tjóni sem kann að verða hjá flutningsaðila.

3. Skil og endurgreiðslur
Skil eru heimil innan 14 daga frá móttöku, að því tilskildu að varan sé ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Endurgreiðsla fer fram þegar varan hefur borist aftur. Sjá nánar undir Skilareglur.

4. Ábyrgð og aukavernd
Hver vara fylgir 2 ára ábyrgð og aukavernd sem tryggir eitt ókeypis skipti ef ljósið bilar við eðlilega notkun eða verður fyrir slysi.

5. Persónuvernd
Persónuupplýsingar eru aðeins notaðar til að afgreiða pantanir og eru aldrei afhentar þriðja aðila nema samkvæmt lögum.

6. Lög og varnarþing
Um viðskipti gilda íslensk lög og skal málum vísað til Héraðsdóms Reykjavíkur.